15.6.2010 | 17:58
Breiðholtsskýrslan 2010
Tveimur dögum fyrir borgarstjórnar kosningar fór ég og Tryggvi með skýrsluna mína um Seljahverfið til allra framboðanna, í framhaldi af því setti ég afraksturinn á þessa síðu. Vegna þeirra góðu undirtekta sem skýrslan fékk var ákveðið fara alla leið og útbúa faglega unna Breiðholtsskýrslu. Markmiðið var að fara yfir öll hverfin í Breiðholtinu á svipaðan máta og ég gerði við Seljahverfið. Til þess að hinum hverfunum í Breiðholtinu yrðu gerð nægjanlega góð skil í Breiðholtsskýrslunni, var á hreinu að ég þyrfti hjálp frá mönnum sem ólust upp í þeim hverfum frá blautu barnsbeini. Snillingarnir Gummi Jóh, Tryggvi Haralds og Jói Jökull komu mér til bjargar og skrifuðu kafla í þessari skýrslu um hverfið sitt, einnig fékk ég góða og fjölbreytilega hjálp frá Bjarna Þór.
Hugmyndin bakvið gerð þessarar skýrslu var sú að við skyldum afhenda hana öllum nýkjörnum borgarfulltrúum á þeirra fyrsta borgarfundi. Með því upplýst þá um ástandið í Breiðholti og hvatt þá til þess að sinna því hverfi aðeins betur en verið hefur gert. Í dag var þessi hugmynd framkvæmd er ég og Tryggvi mættum á fyrsta borgarfundinn með Breiðholtsskýrsluna sjóðheita úr prentun við hönd. Afhentum við borgarfulltrúunum eintak af skýrslunni í eigin persónu. Myndatökumaðurinn okkar hún yndisfríða Tinna Baldurs tók nokkrar myndir af atburðinum.
Ég og Tryggvi stoltir með skýrsluna góðu
Breiðhyltingnum Gísla Marteini leist einstaklega vel á skýrsluna og sagði orðrétt "ég ætla beita mér fyrir þessu" þið munið það með mér.
Hér kynni ég mig og afhendi Hönnu Birnu fyrrum borgarstjóra skýrsluna.
Hún þakkaði fyrir og glotti um leið við tönn. Spurning hvað hafi þotið um hug hennar er við útskýrðum í stuttum máli innihald skýrslunar.
Því miður náðust ekki fleiri myndir eins og er við afhentum núverandi borgarstjóra Jóni Gnarr skýrsluna en hann tók einstaklega vel í þetta framtak okkar. Á næstu dögum mun ég birta skýrsluna kafla fyrir kafla á þessari síðu, endilega fylgist með því.
Að lokum þá ætlum við nokkrir strákar úr Seljahverfinu að gera okkar besta í því að hreinsa Andarpollinn þann 27. júní. Við viljum endilega hvetja fólk til þess að mæta og aðstoða okkar, því samkvæmt máltækinu þá eiga margar hendur að vinna erfitt verk. Þetta hreinsunarátak verður kynnt betur síðar. Það má til gamans geta að allir borgarfulltrúarnir fengu boðsmiða á þennan atburð spennandi að sjá hverjir mæta.
Mbk. Bjarni Fritz
Um bloggið
Bjarni Fritzson
Tónlistarspilari
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þetta er frábært framtak, ég man eftir svipuðu framtaki fyrir nokkrum árum, þá var maður í stjórn ÍR. Hann fór eins og þú með myndavél um hverfið og tók myndir og sendi það svo áfram á borgarstjórn. Ekki í svona fínni skýrslu. Það voru gerðar ýmsar breytingar í kjölfarið og lagfæringar. Þannig að svona framtak getur komið ýmsu í verk.
TómasHa (IP-tala skráð) 15.6.2010 kl. 21:13
Snillingur!
Hilmar Þórlindss (IP-tala skráð) 16.6.2010 kl. 09:37
Þetta er virkilega flott og þarft framtak hjá ykkur. Eigið allt hrós skilið fyrir þetta.
Valur Gunnarsson (IP-tala skráð) 18.6.2010 kl. 00:52
Takk fyrir mjög þarft framtak:) Ég vona að þetta góða framtak ykkar verði til þess að Breiðholtið fái þá athygli frá yfirvöldum sem það á sannarlega skilið líkt og önnur hverfi borgarinnar! Með þessari skýrslu hafði þið framkvæmt það sem margir hugsa - vakið athygli á málnunum. Vel gert :)
Sveinbjörg (IP-tala skráð) 19.6.2010 kl. 10:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.